Endurfjármögnun ætti að vera mun algengari en almennt gengur og gerist. Eðlilegast væri að lántakendur myndu endurfjármagna nokkrum sinnum yfir lánstímann og velja það sem hentar best hverju sinni.

Betri fjármál sérhæfir sig í heildarskoðun á lánamálum viðskiptavina. Húsnæðislán eru ein stærsta og veigamesta fjárfesting flestra einstaklinga, og því mikilvægt að velja rétt. Á þann hátt er hægt að stuðla að fjárhagslegu frelsi þegar fram líða stundir.

Markmiðið er að veita þér fyrsta flokks þjónustu og það góða þekkingu á þínum lánamálum að þú treystir þér til að velja það sem er réttast fyrir þig. Betri fjármál veita ekki beina lánaráðgjöf heldur fjármálaþjónustu sem fræðir, útskýrir kosti og galla lánsforma, og gengur úr skugga um að þú sért vel undirbúin(n) að taka ákvörðun um þín lánamál.

Betri fjármál er óháð öllum fjármálafyrirtækjum og laust við tengsl við stjórnmálaflokka. Við erum sjálfstætt starfandi fyrirtæki sem hefur eitt meginmarkmið; að hjálpa þér að öðlast aukið fjárhagslegt frelsi.

Við veitum persónulega þjónustu og leggjum allan okkar metnað í að mynda traust á milli okkar og viðskiptavina.

Hafðu samband og við hjálpum þér!