Betri Fjármál

Betri Fjármál var stofnað með það að leiðarljósi að hjálpa fólki að öðlast meira fjárhagslegt öryggi. Hugmyndin byggist á því að veita einstaklingsmiðaða og persónulega fjármálaráðgjöf sem byggist á gagnkvæmu trausti og skilningi, en eftir nýjum nálgunum.

Bætt fjármál eru okkar markmið, enda er þóknun okkar háð því að skila þér raunverulegum

Hér að neðan eru þær þjónustuleiðir sem við sérhæfum okkur í.

Endurfjármögnun

Endurfjármögnun getur verið mikilvægt skref í átt að fjárhagslegu frelsi. Íbúðalán eru ein stærsta og stórvægasta fjárfesting þín yfir ævina og því mikilvægt að átta sig á því hvað hentar þér best. Borgar það sig að endurfjármagna? Leyfðu okkur að sýna þér stöðuna. Við getum aðstoðað þig við að taka góða ákvörðun.

Lesa nánar

Fyrir starfslok

Það eru stór tímamót að hætta að vinna og oft erfitt að átta sig á því hvernig er best að hátta fjármálunum. Hvenær er best að byrja að taka lífeyri eða þiggja greiðslur frá Tryggingastofnun? Er hugsanlega best að fresta greiðslum? Vertu undirbúin(n) og upplifðu meira fjárhagsöryggi. Við getum hjálpað þér við undirbúninginn.

Lesa nánar

Fyrstu kaupendur

Áður en fjárfest er í fyrstu fasteign er mikilvægt að skoða hvaða lán eru í boði og þekkja kosti og galla þeirra lánsforma sem bjóðast á Íslandi í dag. Eitt mikilvægasta skrefið í að öðlast fjárhagslegt frelsi á fullorðinsárum er að byrja með það lán sem hentar þér best og þekkja næstu skref. Við getum hjálpað þér að skilja lánin og velja rétt.

Lesa nánar