Fyrsta fasteign. Hvaða lán á ég að taka?
Verðtryggt eða óverðtryggt lán, breytilegir eða fastir vextir, jafnar greiðslur eða jafnar afborganir?
Við hjá Betri fjármálum elskum þessar vangaveltur og erum sérfræðingar í að svara og sýna viðskiptavinum okkar svart á hvítu hvernig lánsformin virka. Við gefum okkur tíma til að útskýra allt sem er óljóst og förum yfir hverjar áhætturnar eru, ásamt kostum og göllum hvers lánsforms fyrir sig.
Það getur verið kostnaðarsamt að taka ranga ákvörðun í upphafi. Rétt ákvörðun getur verið eitt mikilvægasta skrefið sem þú tekur í átt að fjárhagslegu frelsi.
Hafðu samband og við hjálpum þér!