Þjónustuleiðir

Endurfjármögnun

Endurfjármögnun getur verið mikilvægt skref í átt að fjárhagslegu frelsi. Íbúðalán eru ein stærsta og stórvægasta fjárfesting þín yfir ævina og því mikilvægt að átta sig á því hvað hentar þér best. Borgar það sig að endurfjármagna? Leyfðu okkur að sýna þér stöðuna. Við getum aðstoðað þig við að taka góða ákvörðun.

Lesa nánar

Fyrir starfslok

Það eru stór tímamót að hætta að vinna og oft erfitt að átta sig á því hvernig er best að hátta fjármálunum. Hvenær er best að byrja að taka lífeyri eða þiggja greiðslur frá Tryggingastofnun? Er hugsanlega best að fresta greiðslum? Vertu undirbúin(n) og upplifðu meira fjárhagsöryggi. Við getum hjálpað þér við undirbúninginn.

Lesa nánar

Fyrstu kaupendur

Áður en fjárfest er í fyrstu fasteign er mikilvægt að skoða hvaða lán eru í boði og þekkja kosti og galla þeirra lánsforma sem bjóðast á Íslandi í dag. Eitt mikilvægasta skrefið í að öðlast fjárhagslegt frelsi á fullorðinsárum er að byrja með það lán sem hentar þér best og þekkja næstu skref. Við getum hjálpað þér að skilja lánin og velja rétt.

Lesa nánar

Ánægðir viðskiptavinir

30% lækkun á greiðslubyrði

Við hjónin erum í skýjunum með þjónustuna. Kristinn Máni gaf sér allan þann tíma sem við þurftum til að byggja upp traust og skýra út margar hliðar þeirra húsnæðislána sem eru í boði. Á endanum vissum við nákvæmlega hvað við vildum gera og höfum nú öðlast mun meira fjárhagslegt sjálfræði.

Sigurður Ólafsson / Vélstjóri

Ráðgjöf fyrir starfslok

Það var fróðlegt og skemmtilegt að hitta Kristinn Mána og fara yfir fjármálin og starfslokin. Ég öðlaðist nýja sýn á þessi tímamót sem hjálpuðu okkur bæði fjárhagslega og tilfinningalega. Við hjónin lækkuðum greiðslubyrði okkar töluvert og förum með mun minni áhyggjur inn í starfslokin.

Kolbeinn Pálsson / Eigandi Job.is

Fyrstu íbúðakaup

When we decided to purchase a home in Iceland, Kristinn Máni was a life-saver. He patiently explained the Icelandic loan system and the different types of loans available. Without him, we would not have understood our options. With his help, we were able to confidently choose the right loan for us. His service was invaluable

Susanne & Luke / Kópavogsbúar